Eru dómarar virkilega að hugsa um hagsmuni barnanna?

Ég skal segja alveg eins og er: Ef þarf að velja á milli er hag barna nær undantekninngarlaust betur borgið hjá móður. Góður pabbi er vitaskuld gulls ígildi, en í þessu máli eru nokkrar efasemdir um að faðirinn sé í þeim hópi.

Ef minnsti vafi leikur á hæfi föðurins eiga dómarar EKKI að túlka vafann föðurnum í hag. Þeir eiga að túlka vafann börnunum í hag og hugsa um þeirra hagsmuni. Það er nöturlegt að vera lítið barn og þurfa að reiða sig á þessa dómara og það sem virðist vera vafasöm dómgreind þeirra.

Ég vísa á fyrri pistla um frásagnir af óskilvirkni dómara og sendlastörfum sumra þeirra, en þetta mál sýnir betur en margt annað að við þurfum betri dómara. Við þurfum siðað fólk sem tekur ekki tæplega þriggja vikna lágmarkslaun í launahækkun á mánuði - til þess eins að komast betur á aðra milljónina á mánuði. Við þurfum fólk sem kann að vinna og vandar sig við störfin. Við þurfum fólk sem skilur almenning og hvernig aðstæður einstæðar mæður, börn og aðrir sem minna mega sín búa við. Burt með dómara í glerhúsum - fáum fólk eins og okkur í staðinn!


mbl.is Gert að afhenda börn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Takk fyrir góðan pistil. Í þessu sambandi virðist vissulega vera vafi sem taka þyrfti á og ekki nægjanlegt að fara eftir hörðum og þröngum staf laganna eins og alltaf er gert.

http://wonderwoman.blog.is/blog/wonderwoman/entry/1148558/?fb=1

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 7.3.2011 kl. 22:53

2 identicon

Það er gott að þú ert ekki dómari, enda liggur það fyrir, og hefur legið fyrir nokkuð lengi, að börn sem alast upp hjá einstæðum feðrum gengur betur en börnum sem alast upp hjá einstæðri móður.

En sem betur fer eru dómstólar betur mannaðir en svo, að þeir felli illa ígrundaða dóma, eins og þú gerir, byggða á einhliða frásögn móður, eða öllu heldur málsvörn hennar fyrir dómi.

AH (IP-tala skráð) 7.3.2011 kl. 23:57

3 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Það væri nú gaman að fá reynslusögur af því AH. Þetta er ansi einhliða hjá þér. Börn sem alast upp við öryggi og ákveðnum ramma, ástríki og skilning gengur best. Hvort sem um er að ræða móður eða föður.

Smá einstefna í gangi hjá þér.

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 8.3.2011 kl. 00:10

4 Smámynd: Ingi Þór Jónsson

það á aldrey að að dæma eftir einhverju smákökusniði.

það þarf að skoða hvert dæmi fyrir sig, studnum er faðirinn hæfari til að fara með forræðið og stundum er það móðirin.

Ingi Þór Jónsson, 8.3.2011 kl. 09:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband